Leiðbeiningar um skil á myndum í blaðaljósmyndasamkeppni Blaðaljósmyndarafélags Íslands
og/eða í ljósmyndabókina „Myndir ársins 2023“
Nokkur atriði sem þarf að hafa í huga:
• Einungis meðlimir í Blaðamannafélagi Íslands geta sent inn myndir í forvalið og allar myndir verða að vera teknar á keppnisári, nema hluti myndraða eins og sagt er í lögum félagsins. Hver þátttakandi má senda inn 66 myndir.
• Aðeins myndir teknar á árinu 2023 eru gjaldgengar.
• Skila skal myndum í síðasta lagi klukkan 24:00 mánudaginn 5. febrúar 2024.
• Ef myndum er ekki skilað inn á réttu formi má dæma þær úr leik.
Myndum skal skilað á tölvupóstfang Blaðaljósmyndarafélagisns, blimyndir@gmail.com. Myndirnar mega ekki vera í viðhengi tölvupóstsins heldur skal notast við WeTransfer, Dropbox eða annað sambærilegt til skráasendinga. Með Dropbox má annað hvort deila möppu með blimyndir@gmail.com eða senda sem hlekk.
Meðlimum BLÍ er bent á að skoða lög félagsins undir Um okkur hér á síðunni.
Senda má inn myndir í eftirfarandi flokka:
• Daglegt líf
• Fréttir
• Íþróttir
• Portrett
• Seríur
• Umhverfi
Skil á myndum. Myndum skal skilað inn þannig að hægt sé að prenta þær í eftirtöldum stærðum:
• 60 x 80cm , stakar myndir og myndir í seríum.
• 70 x 70cm, stakar myndir sem eru jafnar á hverja hlið.
• Panorama myndir skulu ekki vera breiðari en 120 cm.
Hver þátttakandi velur sér dulnefni og býr til möppu með því nafni. Í þeirri möppu skulu vera möppur sem nefndar eru eftir heitum flokka. Flokkarnir eru Daglegt líf, Fréttir, Íþróttir, Portrett, Seríur og Umhverfi. Myndir skal síðan setja í viðeigandi möppu.
Athugið að ekki þarf að endurnefna myndir.
Athugið að myndir í hverri seríu fyrir sig (3-8 myndir) þurfa að hafa sama nafn sem endar á tölustaf 1,2,3,... eða bókstaf a,b,c,... þannig að röð mynda sé rétt, dæmi:
• heiti_seriu1.jpg, heiti_seriu2.jpg,...
• onnurseriaa.jpg, onnurseriab.jpg,...
Textaskrá t.d. nafn.txt, þar sem fram koma eftirfarandi upplýsingar um þátttakanda skal setja í dulnefnismöppuna.
Fullt nafn
Kennitala
Netfang
Símanúmer
Athugið að hafa aðeins fjórar línur í skránni og aðgreinið atriði með kommu ef þörf er á.
Eftirfarandi upplýsingar (caption/metadata) skulu fylgja innsendum myndum, ekki þarf að eyða neinum upplýsingum eða að merkja þær sérstaklega með dulnefni. Nafn á ljósmyndara má ekki vera í caption.
Heiti myndar
• Fotostation: ObjectName
•Photoshop: Document Title
• Lightroom: Title
Stuttur texti um myndina
• Photoshop: Description
• Fotostation: Caption
• Lightroom: Caption
Nafn á ljósmyndara má ekki vera í caption.
Ef þið hafið einhverjar spurningar, sendið þá tölvupóst á blimyndir@gmail.com