Ljósmyndari/ Kristinn Magnússon
Kærasta Deane William hughreistir leikmanninn eftir að hann er í sárum eftir tap í úrslitaleik.
Ljósmyndari/ Hulda Margrét Óladóttir
Landsliðsmaðurinn Kári Árnason var í leikbanni er Víkingur tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í 30 ár. Hersveitir gátu ekki stöðvað innrás hans á völlinn í leikslok er hann mætti til að fagna með félögum sínum þessari einstöku stund.
Ljósmyndari/ Vilhelm Gunnarsson
Mikið fannfergi var á meðan leikur Breiðabliks og Real Madrid á Kópavogsvelli í Meistaradeild kvenna var leikinn. Leiknum lauk 3-0 fyrir Real Madrid.
Ljósmyndari/ Hafliði Breiðfjörð
Það kafsnjóaði þegar Breiðablik og Real Madrid áttust við í Meistaradeild Evrópu í desember.
Ljósmyndari/ Vilhelm Gunnarsson
Þessi flækingur forðai sé þegar hún áttaði sig á því að þetta var gerfigras sem hún lenti á leik Breiðabliks og Paris Saint-Germain í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á Kópavogsvelli í október. Breiðablik tapaði leiknum 0-2.
Ljósmyndari/ Hulda Margrét Óladóttir
Kvennalandslið Íslands í fótbolta vann frábæran 4-0 sigur á Tékkum í Laugardal. Fögnuðurinn var svo sannarlega innilegur er þær fögnuðu marki Dagnýjar Brynjarsdóttur í leiknum.
Ljósmyndari/ Kristinn Magnússon
Pablo Punyed liggur fyrir aftan varnarvegg Víkinga
Ljósmyndari/Hulda Margrét Óladóttir
Sigurvíman er engri lík og það sást bersýnilega er Þór frá Þorlákshöfn varð Íslandsmeistari í körfubolta. Ragnar Örn Bragason, leikmaður Þórs, fær hér rembingskoss frá glöðum stuðningsmanni eftir að titillinn var í höfn – Þorlákshöfn.
Ljósmyndari/ Hafliði Breiðfjörð
Þórður Ingason horfir á eftir boltanum í netið eftir geggjað skot Tristans Freys Ingólfssonar í leik Stjörnunnar og Víkings.
Ljósmyndari/ Hafliði Breiðfjörð
Ísland á orðið virkilega gott kvennalandslið sem byggist mikið til á samheldni. Þær fagna hér marki gegn Tékklandi.